Að gefnu tilefni, vegna breytinga á reglum

Á síðustu dögum hafa Starfsafli borist athugasemdir vegna breytinga á reglum sjóðsins um styrki til einstaklinga sem taka gildi 1. júní nk. Í framkomnum athugasemdum hefur komið fram nokkur misskilningur varðandi hlutverk, fjármögnun og stjórnskipulag sjóðsins sem mikilvægt er að leiðrétta.

Starfsafl er sjálfstæður starfsmenntasjóður með eigin stjórn og sjálfstætt ákvörðunarvald um reglur og úthlutanir sjóðsins. Ákvarðanir um breytingar á styrkjareglum eru því ekki teknar af stjórnum hlutaðeigandi stéttarfélaga né byggðar á rekstrarniðurstöðu eða fjármagnstekjum þeirra.

Starfsafl er sjálfstæður starfsmenntasjóður með eigin stjórn og sjálfstætt ákvörðunarvald um reglur og úthlutanir sjóðsins. Ákvarðanir um breytingar á styrkjareglum eru því ekki teknar af stjórnum hlutaðeigandi stéttarfélaga né byggðar á rekstrarniðurstöðu eða fjármagnstekjum þeirra.

Fjármögnun sjóðsins byggir á 0,3% starfsmenntaiðgjaldi sem samið er um í kjarasamningum og atvinnurekendur greiða, með öðrum launatengdum gjöldum.  Tekjur sjóðsins tengjast því ekki almennum tekjugrunni stéttarfélaga. Á grundvelli þjónustusamninga sinna svo hlutaðeigandi stéttarfélög almennri þjónustu við einstaklinga vegna umsókna um styrki,  fyrir hönd sjóðsins og í umboði hans. 

Við endurskoðun reglna þarf stjórn sjóðsins að horfa til sjálfbærni sjóðsins til lengri tíma, jafnræðis við úthlutanir, þróunar umsókna, ábyrgðar við meðferð fjármuna sjóðsins og tryggja eftir fremsta megni viðeigandi varnir gegn misnotkun.

Þótt hámarksstyrkir samkvæmt reglum sjóðsins geti verið umtalsverðir er meðalgreiðsla á hvern einstakling aðeins hluti af þeirri fjárhæð sem reglur heimila. Það er því bæði hlutverk og ábyrgð stjórnar að meta reglur sjóðsins reglulega og gera breytingar þegar tilefni er til.

Málefnaleg umræða um menntun, aðgengi að námi og starfsþróun er mikilvæg og ekki síður mikilvægt að slík umræða byggi á réttum upplýsingum um hlutverk og ábyrgð þeirra aðila sem að málunum koma.

Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 5181850 eða með tölvupósti á [email protected]  Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.

Myndin með fréttinni er fengin hér