Viðurkenndir og samþykktir fræðsluaðilar vegna tungumálanáms

Aðeins er hægt að sækja um starfsmenntastyrk vegna tungumálanáms sem fram fer hjá;

  1. Framhalds- eða háskólum
  2. Viðurkenndum fræðsluaðilum, sjá lista á vef stjórnarráðsins
  3. Fræðsluaðilum sem hafa verið samþykktir sérstaklega af starfsmenntasjóðunum, sjá lista hér fyrir neðan.  1. janúar 2027  verður þessi listi felldur niður, sjá frétt hér
Fræðsluaðili Samþykkt af Starfsafli
Anna Karolina Szczesniak – English with Anna √
Blabla-skóli √
Derek Terell Allen √*
Ferenc Szalai √*
Fernan Gonzalez Domingo √*
Hrönn Huld Baldursdóttir √*
Icelandic AI √*
Hólmfríður Gestsdóttir – Íslenskuhornið √*
Rakel Sigurgeirsdóttir – Íslenskunáman.is √*
LearnWithLíou √*
Lemme L. S. Olafsdóttir – Active Icelandic with Lemme Linda √
Radoslaw B. Dudziak √*
AKI sf. √*
Ragnheiður G. Guðmundsdóttir √*
Ragnar Snær ehf √
LANGUAGE COOP / Safespace ehf. √
Sigurður Hermannsson Borgildarson √*
Speak Viking √
Studera.is √*
Anna Margrét Óskarsdóttir – studyicelandic.is √
Tvík, stafræn íslenskukennsla √

Ofangreindur listi er í gildi til 31. desember 2026

√   Fræðsluaðili fór í gegnum samþykktarferli hjá Starfsafli.

√*  Fræðsluaðili fór í gegnum samþykktarferli hjá öðrum sjóði en Starfsafli og Starfsafl samþykkt viðkomandi á grundvelli þess.  Starfsafl áskilur sér rétt til að taka viðkomandi af listanum uppfylli hann ekki viðmið sjóðsins við frekari skoðun. 

Gert er ráð fyrir að fræðsluaðilar búi yfir viðeigandi menntun, hæfni og reynslu í samræmi við viðfangsefni fræðslu. Þeir skulu geta sýnt fram á faglega þekkingu og færni með viðeigandi gögnum, svo sem upplýsingum um menntun, starfsreynslu eða öðrum hæfnisvottunum, sé þess óskað.  

Við mat á fræðsluaðilum er farið yfir tilgreind gögn til að tryggja að þeir uppfylli almenn hæfnisviðmið sjóðsins. Samþykki felur þó ekki í sér gæðamat, vottun eða ábyrgð af hálfu sjóðsins á innihaldi, framkvæmd eða árangri náms eða þjónustu. Sjóðurinn sinnir ekki reglubundnu eftirliti með starfsemi fræðsluaðila en komi fram ábendingar eða upplýsingar sem gefa tilefni til að ætla að fræðsluaðili uppfylli ekki viðmið sjóðsins áskilur sjóðurinn sér rétt til að kalla eftir frekari gögnum og upplýsingum um hlutaðeigandi fræðsluaðila. Meti Starfsafl það sem svo að fræðsluaðili uppfylli ekki skilyrði sjóðsins  kann það að leiða til þess að viðkomandi verði tekinn af lista yfir samþykkta fræðsluaðila.

Sjá nánar hér á síðu fyrir fræðsluaðila

Uppfært 24. ágúst 2026