90% styrkhlutfall til 31. desember 2022
Stjórn Starfsafls samþykkti á sínum síðasta fundi fyrir sumarið framlengingu á 90% endurgreiðslu / styrk til ársloka 2022. Ekki er gert ráð fyrir frekari framlengingum.
Framlengingin nær bæði til einstaklinga og fyrirtækja sem greiða starfstengt nám fyrir sitt starfsfólk.
Styrkir til fyrirtækja:
- Réttur fyrirtækis til að sækja um styrk myndast sjálfkrafa um leið og launatengd gjöld starfsmanns eru greidd.
- Allt starfstengt nám er styrkt
- Styrkt er nám einstakra starfsmanna og hópa
- Hámark styrkfjárhæðar er 3 milljónir króna á ári
- Allar umsóknir eru afgreiddar innan 5 virkra daga, ef öll gögn fylgja
- Reikningur þarf að vera á kennitölu fyrirtækis
- Reikningur getur verið allt að 12 mánaða (athugið að frá og með áramótum lækkar styrkhlutfallið).
Vegna einstaklinga:
Vegna styrkja til einstaklinga gilda þær reglur sem fyrir eru og taka til áuninna réttinda en í stað 75% endurgreiðslu af kostnaði getur endurgreiðsla orðið allt að 90%.
Ekki hika við að senda okkur línu ef frekari upplýsinga er þörf
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 6930097 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.
Myndin með fréttinni er fengin hér