35% aukning á milli ára í greiddum styrkjum

Í ágúst, áttunda mánuði ársins, varð tunglið fullt í tvígang, fyrsta dag mánaðarins og þann síðasta. Þegar svo ber undir er seinna fulla tunglið í einum og sama mánuðinum  kallað „blátt tungl“ eða „blámáni“ 

Fræðsla og þá þekking af þessu tagi gagnast lítið í flestum störfum enda meira til gamans.  Hinsvegar er mikilvægi sí- og endurmenntunar seint metið að verðleikum enda sterk tengsl menntunar við velferð, hagsæld og jöfnuð. Nám, hvort heldur  um er að ræða styttri námskeið eða lengra nám, getur oft verði kostnaðarsamt  og ekki allra að fjármagna. Þar af leiðir er mikilvægt fyrir alla að geta nýtt áunninn styrk í starfsmenntasjóð og þannig átt þess kost að bæta við sig menntun, þekkingu og hæfni. Maður uppsker eins og maður sáir. 

Að því sögðu sóttu margir félgsmenn starfstengd námskeið á þessum fyrstu átta mánuðum, á eigin vegum eða  fyrirtækis. Samtals voru greiddar  tæplega 271 milljónir króna í styrki til fyrirtækja og einstaklinga sem er um 35% aukning á milli ára, sé sama tímabil skoðað.

Það sem af er ári hafa verið greiddar rúmar 271 milljón króna í styrki til fyrirtækja og einstaklinga. 

Í ágúst einum saman var samanlögð styrkfjárhæð rétt yfir 38.3 milljónir króna.  

Styrkir til fyrirtækja

14 umsóknir bárust frá 8 fyrirtækjum í mánuðinum og var lægsti styrkurinn kr. 44,010,- og sá hæsti kr. 1.452.000,- Samanlögð styrkfjárhæð var kr. 4.212.356,-  og á bak við þá tölu 166 félagsmenn.

Styrkir til einstaklinga

Styrkir til einstaklinga voru samtals 34.080.495,- og á bak við þá tölu 399 félagsmenn. 

Efling kr. 25.259.599,-

VSFK kr. 4.448.313,-

Hlíf kr. 4.372.583,-

Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 6930097 eða með tölvupósti á lisbet@starfsafl.is Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.

Myndin með fréttinni er fengin hér