Bus4u fær Fræðslustjóra á láni

Undirritaður hefur verið samningur um verkefnið Fræðslustjóra að láni við fyrirtækið Bus4u í Reykjanesbæ.

Starfsmenn fyrirtækisins eru um 30 talsins og kemur Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks að verkefninu til viðbótar við Starfsafl.

Verkefnið felur í sér að sjóðirnir leggja ti Fræðslustjóra að láni, fræðslu- og mannauðsráðgjafa, sem greinir fræðsluþarfir fyrirtækisins og semur fræðsluáætlun byggða á greiningunni.

Fræðsluáætlunin skal vera með útfærslu að leiðum, tímasetningu námskeiða og tillögum að fræðsluaðilum ásamt aðgerðum um þjálfun og menntun til styttri og lengri tíma. Greiningin og fræðsluáætlunin er ávallt unnin í nánu samstarfi með starfsmönnum og stjórnendum fyrirtækisins. Allur kostnaður vegna ráðgjafans er greiddur af þeim sjóðum sem að verkefninu koma en framlag fyrirtækisins felst í framlögðum tíma starfsfólks.

Bus4u hefur verið hefur verið í rekstri tæplega 20 ár og snýr reksturinn að almenningssamgöngum í Reykjanesbæ, skólaakstri og skipulögðum rútuferðum. Það er stefna stjórnenda fyrirtækisins að efla sitt starfsfólk svo veita megi sem besta þjónustu. Fræðslustjóri að láni er þar svo sannarlega skref í rétta átt.

Ráðgjafi verkefnisins er Miðstöð símenntunar á suðurnesjum en þar starfar hópur þaulreyndra ráðgjafa.

Nánari upplýsingar um verkefnið Fræðslustjóra að láni má nálgast á vef Starfsafls, www.starfsafl.is eða í síma 5107550

Myndin er fengin að láni af vefsíðu fyrirtækisins.