1203 einstaklingar á bak við tölur aprílmánaðar
Fyrirtæki á íslenskum vinnumarkaði eru allskonar og það endurspeglast svo sannarlega í þeirri fræðslu sem þar er keypt. Til að mynda hentar það sumum betur að hafa aðgang að fræðsluefni á rafrænu formi á meðan önnur fá til sín fræðsluaðila eða senda starfsfólk út úr húsi á námskeið og svo er það hópurinn sem nýtir allar leiðir. Allskonar fyrir allskonar, eins og sagt er á góðri íslensku. Það er vel og Starfsafl styrkir allar leiðir enda ríkur skilningur á því að ein leið hentar ekki öllum.
Í april var greidd styrkfjárhæð til fyrirtækja og einstaklinga 26,7 miljónir króna og á bak við þá tölu 1203 einstaklingar.
Í april var greidd styrkfjárhæð til fyrirtækja og einstaklinga 26,7 miljónir króna og á bak við þá tölu 1203 einstaklingar.
Styrkir til fyrirtækja
Í apríl bárust alls 51 umsókn frá 18 fyrirtækjum. Námskeiðin voru allskonar eins og fyrr segir auk þess sem ein umsókn var vegna Fræðslu til framtíðar, en það er tilraunaverkefni sem starfsmenntasjóðirnir taka þátt í með Hæfnisetri ferðaþjónustunnar. 9 umsóknum var hafnað og ástæður þar að baki ýmiskonar, svo sem bárust ekki umbeðin gögn, umsókn var vegna metinna réttinda og það er ekki styrkt hjá sjóðnum, umsókn var tvítekin og svo mætti áfram telja.
Þá er alltaf gaman þegar ný fyrirtæki sækja um í sjóðinn og að þessu sinni bættist eitt nýtt fyrirtæki í hópinn. Það er fyrirtæki í matvælavinnslu sem hefur verið í rekstri í áratugi en nýverið urðu þar eigendaskipti og nýjir eigendur vilja fjárfesta vel í starfsfólkinu og byggja undir hæfni þess og þekkingu.
Heildarfjárhæð afgreiddra styrkja til fyrirtækja var rétt undir 6 milljónum króna og náði sú styrkfjárhæð til 904 félagsmanna.
Hér má sjá styrki mánaðarins, sem endurspegla fjölbreytt og metnaðarfull verkefni í fræðslu og færniþróun.
Stafrænt fræðsuumhverfi
Brúkranaréttindi
Endurmenntun atvinnubílstjóra
Enska fyrir spænskumælandi
Frumnámskeið
Gæðastjórnun
Gerð fræðsluefnis á stafrænu formi
Grunnámskeið vinnuvéla
Iðjuþjálfun
Íslenska
Lyftarararéttindi
Meirapróf
Merking vinnusvæða
Öryggisnámskeið
Samskipti / Ekkó
Sérhæft námskeið (Saga bjórsins)
Sjálfstyrking
Skyndihjálp
Stjórnendanámskeið (vinnuvernd)
Þrif (rafrænt námskeið)
Verstjóranámskeið
Vinnuvélanám
Vinnuvernd – Andleg heilsa og geðrækt
Styrkir til einstaklinga.
Styrkir til einstaklinga í krónum talið voru sem hér segir:
Efling kr.14.363.583,-
VSFK kr. 4.853.687,-
Hlíf kr.1.767.335,-
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 6930097 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.
Myndin með fréttinni er fengin hér