Með sumrinu kemur sumarstarfsfólkið inn á vinnustaðina og í mörgum tilvikum er um að ræða ungt fólk sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Oft vantar upp á reynslu, þekkingu og réttindi og þá er ánægjulegt að segja frá því að fyrirtæki geta á fyrsta mánuði einstaklings í starfi sótt um styrk vegna þess einstaklings og fengið 90% endurgreiðslu á reikning, sjá reglur hér.
Það ætti því ekki að vera nein hindrun að ráða inn unga fólkið okkar heldur hvati og góð fjárfesting, því mögulega koma þeir einstaklingar aftur til starfa síðar og þá með reynslu, þekkingu og réttindi, sem áður hefur verið aflað hjá viðkomandi fyrirtæki.
Það ætti því ekki að vera nein hindrun að ráða inn unga fólkið okkar heldur hvati og góð fjárfesting, því mögulega koma þeir einstaklingar aftur til starfa síðar og þá með reynslu, þekkingu og réttindi, sem áður hefur verið aflað hjá viðkomandi fyrirtæki.
Í þessu samhengi er vert að hafa í huga að einstaklingur sem ekki er í fullu starfi, til að mynda nemi sem vinnur með skóla, er ansi lengi að vinna sér inn rétt hjá sjóðnum. Hinsvegar öðlast fyrirtæki fullan rétt fyrir starfsmann um leið og ráðningarsamningur er undirritaður og þá skiptir engu hvort viðkomandi er í fullu starfi eða tímabundnu. Það er því mikill ávinningur fyrir starfsfólk ef fyrirtæki fjárfestir í þeim með þeim hætti að greiða starfstengt nám sem sannarlega nýtast inn í framtíðarstörf.
Það er því mikill ávinningur fyrir starfsfólk ef fyrirtæki fjárfestir í þeim með þeim hætti að greiða starfstengt nám sem sannarlega nýtast inn í framtíðarstörf.
Athugið að viðkomandi þarf að vera komin á launaskrá þegar námið er sótt, námið þarf að vera starfstengt og reikningur á kennitölu fyrirtækis. Hægt er að sækja um styrk þegar skilagreinar hafa verið sendar inn og iðgjöld greidd. Umsókn er alla jafna afgreidd innan 5 virkra daga frá því að hún berst, svo fremi sem öll gögn fylgja með. Sótt er um á vefgátt sjóða, www.attin.is
Ekki hika við að senda okkur línu ef þig langar að vita meira um það hvernig þú getur stutt við þitt starfsfólk.
Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 6930097 eða með tölvupósti á [email protected]
Um Starfsafl:
Starfsafl – starfsmennt Samtaka Atvinnulífsins, Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, varð til í tengslum við kjarasamninga vorið 2000. Þá var samið um stofnun sérstaks sjóðs sem ætlað er að byggja upp menntun almennra starfsmanna fyrirtækja. Tekjur sjóðsins eru samningsbundin gjöld atvinnurekenda (starfsmenntaiðgjald) til sjóðsins eins og um semst á hverjum tíma. Ekki þarf að sækja um sérstaka aðild heldur myndast réttur fyrirtækis um leið og launatengd gjöld eru greidd.
Myndin með fréttinni er fengin hér