Ekki fleiri umsóknir afgreiddar þetta árið

Það er með ánægju sem við getum sagt að að allar umsóknir sem bárust í þessum síðasta mánuði ársins til dagsins í dag hafa verið afgreiddar,* þar með talið þær umsóknir sem bárust eftir 11. desember, sem var síðasti dagurinn til að skila inn á árinu.

Þrátt fyrir þessi tímamörk þá bárust 43 umsóknir eftir 11. desember.  Það hefur verið mikið álag á sjóðnum bæði við afgreiðslu og aðra þjónustu því tengdu en sannarlega ánægjulegt.  Ekki verða afgreiddar fleiri umsóknir þetta árið og þær sem berast eftir daginn í dag, að honum meðtöldum, verða afgreiddar á nýju ári. 

Þá hafa allar umsóknir sem bárust á árinu verið afgreiddar með einum eða öðrum hætti* og hefur sjóðnum aldrei borist þvílíkur fjöldi umsókna áður og heildarstyrkfjárhæð ársins hefur aldrei verið eins há og nú eða 100 milljónir króna, sem er 25% aukning frá síðasta ári.  Við fögnum því öfluga fræðslustarfi sem á sér stað innan fyrirtækja og stefnum enn hærra á nýju ári.  

Við fögnum því öfluga fræðslustarfi sem á sér stað innan fyrirtækja og stefnum enn hærra á nýju ári.  

Ef við höldum áfram með tölfræðina þá voru á árinu öllu afgreiddar 539 umsóknir, þar af bárust 137 í desember.  Það er 25% allra umsókna sem bárust á árinu.  Ef nóvember er tekinn með, en þann mánuð bárust 85 umsóknir, þá barst sjóðnum þessa tvo síðustu mánuði ársins 41% umsókna ársins.

Greidd styrkfjárhæð þennan síðasta mánuð var 28 milljónir króna eða 33% af greiddum styrkjum á árinu.  Mikill fjöldi reikninga liggur þarna að baki og margir hverjir jafnvel frá fyrri hluta ársins  og finnst okkur sem hér störfum það sérstakt að rekstraraðilar skuli sætta sig við að liggja svona lengi úti með sitt fé, hundruði þúsunda og jafnvel milljónir. 

Greidd styrkfjárhæð þennan síðasta mánuð var 28 milljónir króna eða 33% af greiddum styrkjum á árinu.

Þá er vert að minna á það að Starfsafl greiðir styrki út innan 5 virkra daga ef öll tilskylin gögn fylgja með umsókn.  

Að síðustu viljum við  hvetja alla til að sækja jafnt og þétt um styrki yfir árið og byggja þannig undir enn öflugra fræðslustarf innan fyrirtækjanna.

Með góðri kveðju,

Framkvæmdastjóri Starfsafls.

*Örfáar umsóknir eru enn í ferli og ekki hægt að afgreiða þar sem þær bárust efitr 18. desember,  gögn vantar eða hafa verið færðar yfir á næsta ár þar sem fyrirtæki höfðu fullnýtt sinn rétt hjá sjóðnum.  Þá eru nokkur Fræðslustjóra að láni og Fræðsla til framtíðar verkefni í ferli