Aukið aðgengi að íslenskunámi

Að kunna og skilja íslensku er lykilþáttur í aðlögun að íslensku samfélagi, atvinnulífi og  daglegum samskiptum á vinnustað. Áhersla Starfsafls á að efla íslenskukunnáttu aðfluttra starfsmanna styður ekki einungis við markmið um aukna færni og starfsþróun heldur einnig samfélagslega þátttöku og fjölmenningarlega samvinnu á íslenskum vinnumarkaði.

Áhersla Starfsafls á að efla íslenskukunnáttu aðfluttra starfsmanna styður ekki einungis við markmið um aukna færni og starfsþróun heldur einnig samfélagslega þátttöku og fjölmenningarlega samvinnu á íslenskum vinnumarkaði.

Starfsafl fræðslusjóður hefur  styrkt fjölmörg fyrirtæki sem vilja efla íslenskukunnáttu starfsfólks með því að bjóða þeim aðgang að smáforritinu Bara tala, sem hefur notið mikilla vinsælda meðal starfsfólks af erlendum uppruna á íslenskum vinnumarkaði. Forritið býður upp á markvissa og starfsmiðaða íslenskukennslu sem byggir á raunhæfum aðstæðum úr daglegu lífi og starfi. Með því að leggja áherslu á aukinn orðaforða, hlustunarfærni og virka talþjálfun, styður forritið við markmið um aukna þátttöku og aðlögun aðfluttra einstaklinga í íslensku samfélagi og atvinnulífi.

Hingað til hefur Bara tala eingöngu verið í boði fyrir þá sem starfa hjá fyrirtækjum sem kaupa aðgang að forritinu fyrir sitt starfsfólk. Ekki hefur verið mögulegt að kaupa aðgang sem einstaklingur, sem hefur takmarkað aðgengi að forritinu verulega. Það er því sérstaklega ánægjulegt að segja frá því að undir lok siðasta árs náðust að samningar á milli Eflingar stéttarfélags og Bara tala sem tryggja félagsfólki Eflingar kostnaðarlausan aðgang að smáforritinu.  Starfsafl styrkir þetta góða samstarf og nemur sá styrkur alls 2,2 milljónum króna eða 90% af kostnaði fyrir félagsfólk Eflingar á almennum vinnumarkaði.  

Það er því sérstaklega ánægjulegt að segja frá því að undir lok siðasta árs náðust að samningar á milli Eflingar stéttarfélags og Bara tala sem tryggja félagsfólki Eflingar kostnaðarlausan aðgang að smáforritinu.  Starfsafl styrkir þetta góða samstarf og nemur sá styrkur alls 2,2 milljónum króna eða 90% af kostnaði fyrir félagsfólk Eflingar á almennum vinnumarkaði. 

Umsókn um aðgang fer fram í gegnum vefsíðu Eflingar og skulu félagsmenn uppfylla eftirfarandi skilyrði til þess að fá leyfi úthlutað og halda aðgangi sínum að Bara Tala smáforritinu: 

Félagsmaður þarf að vera greiðandi félagsmaður til Eflingar stéttarfélags. 
Félagsmaður má ekki þegar hafa aðgang að Bara Tala í gegnum sinn laungreiðanda. 
Félagsmaður sem hefur fengið leyfi úthlutað þarf að vera með virka notkun á smáforritinu. Ef engin notkun er í 2 vikur þá áskilur Efling sér rétt til þess að afturkalla leyfið. 

Starfsafl hvetur  fyrirtæki sem ekki hafa þegar tryggt starfsfólki sínu aðgang að Bara tala smáforritinu til að kynna sér þessa nýju leið og hvetja starfsfólk sitt til að nýta sér þetta tækifæri til íslenskunáms.  Þeim fyrirtækjum sem hafa áhuga á að kaupa aðgang fyrir sitt starfsfólks er bent á að hafa samband við skrifstofu Bara tala og hægt er að kynna sér nánar reglur Starfsafls hér á vefsíðunni.

Fyrirtæki sem hafa áhuga á að kynna sér sjóðinn og kanna hvaða leiðir eru færar, er velkomið að hafa samband í síma 6930097 eða með tölvupósti á [email protected] Einstaklingum er bent á hlutaðeigandi stéttafélag, eins og áður segir, en þar fer fram afgreiðsla styrkja til einstaklinga.

Myndin með fréttinni er fengin hér