Styrkir til fyrirtækja

Öll fyrirtæki á almenna markaðnum með starfsfólk í Eflingu, VSFK og Verkalýðsfélaginu Hlíf í Hafnarfirði eiga rétt á og geta sótt um styrk til sjóðsins. Ekki þarf að sækja sérstaklega um aðild heldur myndast réttur við greiðslu launatengdra gjalda. 

Reglur Starfsafls varðandi fyrirtækjastyrki eru eftirfarandi:
 
1. Upphæð styrkja vegna námskeiðahalds fyrirtækja
 
a.  Fyrirtæki sem greitt hafa iðgjöld í sjóðinn* í samfellt 12 mánuði við dagsetningu umsóknar og eru í skilum, geta sótt um styrk
 
b. Starfsafl styrkir að öllu jöfnu fyrirtæki um 90% af kostnaði fyrir sína félagsmenn* vegna starfstengdrar fræðslu og náms 
 
c. Ef fyrirtæki er ekki í Samtökum atvinnulífsins þá er styrkurinn 90% af 90%.
 
d. Fyrirtæki geta fengið allt að 4 mkr. á ári í styrk, sjá hér
 
e. Salarleiga í tengslum við námskeiðahald er styrkt um 90% þar sem það á við. Á einungis við um lítil fyrirtæki sem ekki hafa aðgang að sal og leggja verður fram rök fyrir því og reikning fyrir kostnaði.
 
f. Túlkaþjónusta sem fer fram á námskeiðum er styrkt um 90% af kostnaði
 
2. Upphæð styrkja vegna náms einstaklinga sem greitt er af fyrirtæki
 
Greitt er að hámarki  kr. 300.000 til fyrirtækja vegna einstaklingsnáms starfsmanna (þó aldrei meir en 90% af reikningi).  Hámarksstyrk er ekki  hægt að sækja um oftar en einu sinni vegna sama félagsmanns nema fram sé lagður gildur rökstuðningur. 
 
3. Sameiginlegur styrkur félagsmanns og fyrirtækis
 
Félagsmaður og fyrirtæki geta sótt sameiginlega um styrk vegna starfstengdrar fræðslu, sjá nánar hér
 
4. Stafræn fræðsla
 
a. Styrkt er áskrift að stafrænu námsumhverfi um 90% af reikningi en þó aldrei meira en kr. 6000,- fyrir hvern félagsmann á ári. Með umsókn þarf að fylgja greinagerð, sjá hér 
 
b. Styrkt eru áskrift að stafrænum fræðslupökkum og öppum sjá hér
 
c. Þau fyrirtæki sem útbúa eigið stafrænt námsefni fyrir stafrænt námsumhverfi geta sótt sérstaklega um styrk til sjóðsins en veittur er allt að 400.000 króna styrkur vegna eigin námsefnisgerðar. Hámarksfjöldi styrkja eru fjórir á almannaksári, sjá hér 
 
5. Námsefnisgerð, nýsköpunar-og þróunarstyrkir
 
 Þau verkefni sem stuðla að nýsköpun í menntun félagsmanna Starfsafls ásamt þróunarverkefnum munu njóta forgangs við styrkveitingu.  sjá umsóknareyðublað hér  
 

Misnotkun á fræðslusjóði og viðurlög

Umsækjandi sem reynist hafa gefið rangar eða villandi upplýsingar og eða notar fölsuð gögn við styrkumsókn, missir rétt sinn til styrks í 36 mánuði. Hafi umsækjandi fengið greidda styrkupphæð á grundvelli falsaðra og eða rangra gagna, er heimilt að krefja viðkomandi um endurgreiðslu á heildarupphæð styrks auk dráttarvaxta. Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að kæra til lögreglu brot af þessu tagi.

Þau gögn sem þarf með umsókn  eru án undantekninga samanber eftirfarandi:

1. Upplýsingar um fræðsluna (stutta samantekt á efnisþáttum eða lýsingu á nám, slóð á vefsíðu), sjá hvað er styrkt hér

2. Reikningur  á kennitölu fyrirtækis, þar sem sundurliðun kostnaðarþátta er skýr. Hér er undantekning vegna sameiginlegs styrks félagsmanns og fyrirtækis, sjá reglu hér að ofan. Reikningur má ekki vera eldri en 12 mánaða.  

3. Staðfesting á greiðslu, þ.e. bankakvittun úr íslenskum banka sem staðfestir greiðslu í íslenskum krónum.

4. Listi  yfir þátttakendur, nöfn, kennitölur og stéttarfélagsaðild (gott að hafa í excel skjali)

5. Yfirlit yfir skil á starfsmenntaiðgjaldi  vegna þess starfsfólks sem telst til félagsmanna Eflingar, sjá nánar hér

 

Ef eitthvað af gögnum vantar er umsókn merkt þannig að gögn vanti og þá  hafnað ef gögnin skila sér ekki innan 5 virkra daga.

 

Vinsamlegast athugið að umsókn er hafnað ef eitthvað af tilgreindum gögnum vantar. 

 

 

Hvað er styrkt og hvað ekki, skligreiningar og skilyrði, sjá hér

 

* Fyrirtæki sem greiða af starfsmönnum til Eflingar, VSFK og Verkalýðsfélagsins Hlífar, geta sótt um styrki tíl námskeiðahalds. Á það er bent að  sjálfstætt starfandi einstaklingar (eigendur fyrirtækja)  geta ekki átt aðild að þessum stéttafélögum (sjá reglur félaga) og eru þar með ekki gildir umsækjendur í sjóðinn.