Fræðsluaðilar

Gott að vita fyrir þá sem taka að sér fræðslu á vinnustöðum eða bjóða upp á námskeið fyrir einstaklinga og hópa

Fjöldi fræðsluaðila, ráðgjafa og annarra sérfræðinga starfar sjálfstætt við  fræðslu, markþjálfun eða kennslu til einstaklinga, til dæmis í tungumálum. Þessir aðilar eru oft ekki tengdir viðurkenndum fræðsluaðilum eða formlegum skólum, en gegna engu að síður afar mikilvægu hlutverki í símenntun og miðlun þekkingar.

Við hjá Starfsafli fögnum því þegar slíkt fagfólk deilir sérþekkingu sinni og tekur virkan þátt í að efla hæfni einstaklinga og starfsfólk fyrirtækja. Í mörgum tilfellum er sú fræðsla sem þessir aðilar veita styrkhæf hjá sjóðnum.

Gerðar eru ríkari kröfur til náms og fræðsluaðila þegar sótt er um einstaklingsstyrk. Einstaklingsstyrkir eru almennt bundnir við nám hjá viðurkenndum fræðsluaðilum á framhalds- og háskólastigi eða annað nám sem uppfyllir skilyrði sjóðsins.  Fyrirtækjastyrkir geta hins vegar náð til sérhæfðrar fræðslu og ráðgjafar sem veitt er innan fyrirtækja af fagfólki með sérþekkingu á sínu sviði, þótt viðkomandi sé ekki viðurkenndur fræðsluaðili eins og á við um reglur um einstaklingsstyrki.

Það er afar mikilvægt að kynna sér þær reglur og viðmið sem gilda, bæði varðandi uppsetningu og innihald námskeiða, hæfni, þekkingu og reynslu fræðsluaðila, sem og gerð reikninga og skilyrði styrkhæfni, svo fátt eitt sé nefnt, til þess að ferlið gangi hnökralaust fyrir sig fyrir alla aðila.

Skilgreining á starfsnámi:

Starfsafl styðst við flokkun fræðsluaðila við skilgreiningu á því fræðsla fellur undir almennt starfsnám sbr. eftirfarandi: Afmarkaður hluti náms sem fylgir fyrirfram ákveðinni áætlun eða skilgreiningu og lýkur yfirleitt með vottun á frammistöðu eða annars konar staðfestingu

Skilgreining og uppbygging fræðslu
Hugtakið fræðsla er notað til einföldunar á þessari síðu yfir allt nám, námskeið og erindi, hvort heldur hún fari fram innan eða utan vinnutaða eða í gegnum fjarfundabúnað eða upptökur.

Uppbygging fræðslu:

  1. Hafa skýrt afmarkað upphaf og lok
  2. Hafa skilgreind markmið og efnistök
  3. Vera kennt af leiðbeinanda sem býr yfir viðeigandi hæfni og þekkingu

Að fræðsla uppfylli þessi skilyrði er nauðsynlegt, en ekki eitt og sér nægjanlegt til að tryggja styrkhæfi.

Í þessu felst að mikilvægt er að hægt sé að nálgast upplýsingar á heimasíðu fræðsluaðila eða á öðrum tilgreindum vefmiðli sem og upplýsingar um menntun, hæfni og reynslu leiðbeinanda, sé eftir því leitað.

Viðmið um leiðbeinendur

Almennt er gert ráð fyrir því að þeir sem annast fræðslu fyrir einstaklinga og vinnustaði búi yfir viðeigandi menntun, hæfni og reynslu sem hæfir því efni sem boðið er upp á.  

Leiðbeinendur skulu hafa faglega þekkingu og færni á viðkomandi sviði og geta sýnt fram á hæfni sína með viðeigandi gögnum, s.s. námsferli, starfsreynslu eða öðrum hæfnisvottunum, sé kallað eftir því.  Athugið sérstaklega auknar kröfur til þeirra sem kenna tungumál,.

Upplýsingar um leiðbeinanda skulu vera skýrar og aðgengilegar fyrir þátttakendur og sjóðinn og vera hluti af umsóknarferli fyrirtækja til sjóðsins.

Vegna tungumálakennslu

Á við um allt nám, námskeið og einkakennslu. 

Aðeins er hægt að sækja um starfsmenntastyrk vegna tungumálanáms sem fram fer hjá viðurkenndum fræðsluaðilum, sjá lista á vef stjórnarráðsins  og hjá fræðsluaðilum sem hafa verið samþykktir sérstaklega af starfsmenntasjóðunum, sjá lista hér

Leiðbeinandi á tungumálanámskeiðum sem óskar þess að vera á lista yfir samþykkta fræðsluaðila hjá Starfsafli þarf að uppfylla eftirfarndi kröfur 

  • Kennsluréttindi
  • Marktæk þekking á kennslu tungumála
  • Reynsla af kennslu frá viðurkenndum fræðsluaðila
  • Lokið námi á háskólastigi
  • Fagleg vinnubrögð og metnaður til að skila góðri vinnu

Við mat á fræðsluaðilum er farið yfir tilgreind gögn til að tryggja að þeir uppfylli almenn hæfnisviðmið sjóðsins. Samþykki felur þó ekki í sér gæðamat, vottun eða ábyrgð af hálfu sjóðsins á innihaldi, framkvæmd eða árangri náms eða þjónustu. Sjóðurinn sinnir ekki reglubundnu eftirliti með starfsemi fræðsluaðila en komi fram ábendingar eða upplýsingar sem gefa tilefni til að ætla að fræðsluaðili uppfylli ekki viðmið sjóðsins áskilur sjóðurinn sér rétt til að kalla eftir frekari gögnum og upplýsingum um hlutaðeigandi fræðsluaðila. Meti Starfsafl það sem svo að fræðsluaðili uppfylli ekki skilyrði sjóðsins  kann það að leiða til þess að viðkomandi verði tekinn af lista yfir samþykkta fræðsluaðila.

Vegna útgefinna reikninga

Reikningar skulu vera sundurliðaðir ef þeir innihalda annan kostnað en beinan fræðslukostnað. Það er nauðsynlegt til að unnt sé að meta hvaða kostnaðarliðir eru styrkhæfir.

Skilyrði og fyrirvarar

Starfsafl áskilur sér rétt til að taka til skoðunar og kalla eftir nánari upplýsingum um:

  • Efnisinnihald námskeiða
  • Kostnað
  • Hæfi leiðbeinenda

Starfsafl áskilur sér jafnframt rétt til að gera athugasemdir við eða takmarka styrkveitingu ef verðlagning náms telst ekki í samræmi við viðmið á markaði

Að gefnu tilefni áskilur Starfsafl sér rétt til að hafna umsóknum.

 

Uppfært 5. júní 2026