Fyrirtæki geta sótt um styrki til að kosta eigin fræðslu sem fram fer innan fyrirtækjanna með aðstoð eigin starfsmanna í hlutverki leiðbeinanda. Í flestum eða öllum tilvikum er um að ræða sérhæfða fræðslu sem ekki er hægt að kaupa frá sjálfstæðum fræðsluaðilum. Litið verður sérstaklega á þetta atriði við mat á styrkhæfi. Má þar nefna þjálfun samkvæmt tilteknum þjálfunarferlum almennra starfsmanna t.d. í þjónustu og framleiðslu sérhæfðra vara.
Heimilt er að styrkja innri fræðslu fyrirtækja samkvæmt eftirfarandi reglum
1. Undirritað er samkomulag við fyrirtækið um styrkveitingarnar. Undirritað samkomulag er skilyrði fyrir því að fyrirtæki geti sótt um í sjóðinn vegna eigin fræðslu. Fyrirtæki sem ekki hafa undirritað samkomulag þurfa að hafa samband við skrifstofu Starfsafls áður en lögð er inn umsókn í fyrsta sinn en fyrirtæki sem hafa undirritað samkomulag sækja um styrk á áttinni eins og um aðkeypta fræðslu sé að ræða.
2. Styrkur miðast eingöngu við þá starfsmenn (nemendur) fyrirtækjanna sem eru félagsmenn stéttarfélaga sem aðild eiga að sjóðunum*
3. Styrkur miðast við hverja kennda klukkustund starfstengds námskeiðs, hámark 7.500 kr pr námskeiðsklukkustund. Inni í því verði er þóknun fyrir undirbúning.
4. Hámark styrkveitinga sjóðsins til fræðslu af þessu tagi er 12.000 kr pr. almanaksár og félagsmann og er endurskoðuð 1. jan ár hvert. Starfsafl getur gert undanþágu frá þessu ákvæði ef starfsmenn fyrirtækis eru færri en 30, í allt að 15.000 kr pr. ár og félagsmann.
5. Ekki eru styrktar námskeiðsstundir sem hafa færri en 5 þátttakendur
6. Krafist er viðverulista námsmanna sem er vottaður af kennara/leiðbeinanda fyrirtækisins áður en styrkur er greiddur út.
7. Ekki er greiddur kostnaður vegna leigu á sal (námskeiðsaðstöðu) né vegna veitinga.
8. Námsgögn eru styrkt með allt að kr 350 pr. nemanda, enda fari heildarstyrkur ekki yfir hámark sbr. 3. lið. Afrit af námsgögnum sendist Starfsafli með öðrum uppgjörsgögnum.
9. Að öðru leyti gilda sömu reglur og fyrir styrki Starfsafls í annað starfsnám sem fyrirtæki halda (með utanaðkomandi fræðsluaðila) hvað varðar umsóknir o.fl.
Reglur þessar tóku gildi 10. september 2009, síðast uppfærðar 23. janúar 2018, og eru ekki tæmandi. Stjórn Starfsafls áskilur sér rétt til að bæta inn í samningsdrög aðra fyrirvara og ákvæði ef sjóðurinn telur þörf á því.
*Efling, VSFK og Hlíf
Dæmi.
Námskeið er 4 klukkustundir.
Þátt taka 7 félagsmenn og þar af eru 3 í Eflingu, VSFK eða Hlíf.
4 stundir x 7500,- = 30.000,- / 7 x 3
Styrkur er þá kr. 12.800,-