Starfsafl
Starfsmennt Samtaka
atvinnulífsins og
Flóabandalagsins
Sætún 1
sími: 510 7544
fax: 510 7549
starfsafl@starfsafl.is
Þrettán útskrifaðir úr Flutningaskóla Samskipa
Þrettán starfsmenn voru útskrifaðir sem flutningatæknar úr Flutningaskóla Samskipa við hátíðlega athöfn í gær að viðstöddum Kristjáni L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og fleiri góðum gestum. Skólinn, sem starfræktur er í samstarfi við Mími-símenntun, er sérhæfður fyrir starfsfólk Samskipa í vöruhúsum, á gámavelli og bílstjóra félagsins og er þetta er í annað sinn sem útskrifað er úr skólanum.
 
Flutningaskóli Samskipa er fyrir metnaðarfullt starfsfólk Samskipa sem hefur náð 20 ára aldri og á stutta formlega skólagöngu að baki. Aðalmarkmið hans er að styrkja faglega hæfni starfsfólks, auka sjálfstraust þess og möguleika á starfsþróun.
 
Skólinn er viðurkenndur af menntamálaráðuneytinu til allt að 23 eininga á framhaldsskólastigi. Kennt er samkvæmt námskrá Samskipa sem byggð er á viðurkenndri námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Námið tekur tvær annir, samtals 339 kennslustundir, og fer það fram á vinnutíma í kennslustofu Samskipa og á athafnasvæði félagsins við Kjalarvog.
 
Kennarar á vegum Mímis-símenntunar kenna alla almenna áfanga í náminu en sérfræðingar Samskipa kenna flutningafræði og öryggismál ásamt vinnustaðanámi sem fer fram á athafnasvæði fyrirtækisins við Kjalarvog.
 
 
 
Þrettán stoltir útskriftarnemar frá Flutnngaskóla Samskipa ásamt forstjóra félagsins (lengst t.v.) og samgönguráðherra í gær. 
 

Starfsafl - Sætúni 1, 105 Reykjavík - 510-7544