Fundur með starfsmönnum Magna verktaka
Fulltrúar Starfsafls og Eflingar funduðu með starfsmönnum
Magna verktaka fyrr í þessum mánuði. Framkvæmdastjóri Starfsafls lagði áherslu á þá fræðslustyrki sem standa félagsmönnum Eflingar til boða. Fundurinn tókst með ágætum og full ástæða til að hvetja starfsmenn að nýta aukinn tíma til afla sér viðbótarréttinda af ýmsu tagi.
Verktakageirinn á undir högg að sækja í því árferði í efnahagsmálum sem nú ríkir. Starfsafl hefur áður komið að fjármögnun fræðsluverkefna í verktakageiranum og er skemmst að minnast vel heppnaðs verkefnis hjá Loftorku hf. en þar fóru starfsmenn á námskeið, m.a. í vistakstri, með stuðningi Starfsafls og fyrirtækisins.
Að loknum góðum fundi hjá Magna verktökum ehf., Heiðar Þór Ásgeirsson, trúnaðarmaður Eflingar hjá Magna verktökum (t.h.) og Þórir Guðjónsson, starfsmaður Eflingar.