Starfsafl
Starfsmennt Samtaka
atvinnulífsins og
Flóabandalagsins
Sætún 1
sími: 510 7544
fax: 510 7549
starfsafl@starfsafl.is
17 útskrifast úr jarðlagnatækni

Mímir símenntun útskrifaði 17 nemendur í jarðlagnatækni sl. föstudag. Námið fylgir námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og er metið til eininga á framhaldsskólastigi.   Námið er ætlað öllum þeim sem starfa við jarðlagnir og jarðvinnu, hvort sem þeir starfa hjá orkuveitum, sveitarfélögum, fjarskiptafyrirtækjum eða hjá verktökum. Athöfnin fór fram í húsakynnum Orkuveitunnar í Gvendarbrunnum.

Orkuveita Reykjavíkur hefur nú sett það sem skilyrði að verktakar sem vinna við lagnakerfi OR hafi jarðlagnatækna eða menn sem lokið hafa sambærilegu námi meðal starfsmanna sinna. Einnig gera nokkur sveitarfélög sömu kröfur.

Mímir-símenntun, Samorka, Orkuveita Reykjavíkur, Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar, Efling-stéttarfélag, Starfsafl og Landsmennt standa saman að náminu.

Þetta er í 11 sinn sem útskrifað er af þessari námsleið og hefur námið nú unnið sér fastan sess í menntun almennra starfsmanna.

 

Útskrifaðir jarðlagnatæknar við athöfnina sl. föstudag. Í bakgrunni má sjá fulltrúa aðstandenda námsleiðarinnar.



 


 


 


Starfsafl - Sætúni 1, 105 Reykjavík - 510-7544