Íslenska Gámafélagið ehf. fær fræðslustjóra að láni
Íslenska Gámafélagið ehf., Starfsafl, Landsmennt og Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks (SVS) hafa gengið frá samkomulagi um um lán á fræðslustjóra til fyrirtækisins. Samningurinn nær til um 180 starfsmanna fyrirtækisins sem greitt er af til sjóðanna.
Íslenska Gámafélagið er aðeins 10 ára gamalt fyrirtæki og hefur verið brautryðjandi á sviði endurvinnslu hjá fyrirtækjum, veitt ráðgjöf til fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga í sorpmálum með svokölluðu þriggja tunnu verkefni. Markmið fyrirtækisins hefur einnig verið að reisa Endurvinnsluþorp í Gufunesi þar sem framleiðslu- og sprotafyrirtæki hafa byggt upp bæjarfélag þar sem sjáfbærni og græn orka til framtíðar er höfð að leiðarljósi. Íslenska Gámafélagið hefur m.a. unnið til umhverfisverðlauna umhverfisráðuneytisins, Kuðungsins,fyrir breytingar á bílum til notkunar á metan eldsneyti svo og þriggja tunnu kerfis.
Fræðslustjóri að láni er heiti verkefnis sem Starfsafl hefur boðið fyrirtækjum síðan í lok árs 2008. Fræðslustjórinn er venjulega sjálfstæður mannauðsráðgjafi sem fer í boði fræðslusjóðanna inn í fyrirtæki í tiltekinn tíma og aðstoðar þau við greiningu á þörfum fyrir fræðslu, lyftir upp þeirri fræðslu sem þegar er í fyrirtækinu og bendir á leiðir til auka fræðslu í framhaldi af greiningunni. Þessi símenntunaráætlun er síðan grunnur að fræðslustarfi viðkomandi fyrirtækis í lengri eða skemmri tíma. Verkefnið hefur mælst vel fyrir meðal fyrirtækja og starfsmanna þeirra.
Frá undirritun samninga, fremri röð, f.v. Kristín Njálsdóttir, Landsmennt, Björn Garðarsson, verkefnastjóri SVS, Helga Fjóla Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Íslenska Gámafélagsins, Sveinn Aðalsteinsson, Starfsafli. Aftari röð, f.v. Birna V. Jakobsdóttir, mannauðsráðgjafi, Valdís A. Steingrímsdóttir, Starfsafli, Helena Sigurjónsdóttir, Íslenska Gámafélagið.