Starfsafl
Starfsmennt Samtaka
atvinnulífsins og
Flóabandalagsins
Sætún 1
sími: 510 7544
fax: 510 7549
starfsafl@starfsafl.is
Össur hf skipuleggur þjálfun almennra starfsmanna

Össur hf. hefur nýverið lokið nýrri þarfagreiningu og símenntunaráætlun fyrir almenna starfsmenn fyrirtækisins. Verkefnið var unnið með aðstoð verkefnisins Fræðslustjóri að láni sem Starfsafl bauð fyrirtækinu. Niðurstöður verkefnisins voru kynntar á fundi með starfsmönnum Starfsafls í gær.

Ætlunin er að formgera og auka þá þjálfun sem nú stendur starfsmönnum til boða og á skipulegri hátt en verið hefur. Notuð verða ýmis verkfæri til að meta færni starfsmanna og verður allt ferlið unnið í samráði við viðkomandi starfsmann. Að lokinni þjálfun, sem tekur 3 - 4 ár, fær starfsmaðurinn sérstakt skírteini sem viðurkenningu á hæfni. Starfsmaðurinn fær þá m.a. réttindi starfsfóstra sem kemur að þjálfun nýliða ásamt viðkomandi verkstjóra.  Auk þjálfunar í sérhæfðum verkferlum verður væntanleg boðið upp á fræðslu í ýmsum tengdum greinum, m.a. fagensku.

 

 
 
 
 
 

Starfsafl - Sætúni 1, 105 Reykjavík - 510-7544