Starfsafl
Starfsmennt Samtaka
atvinnulífsins og
Flóabandalagsins
Sætún 1
sími: 510 7544
fax: 510 7549
starfsafl@starfsafl.is
Reglur um styrki til ökunáms endurskoðaðar

Stjórn Starfsafls ákvað á fundi sínum 2. mars sl. að styrkja einungis bóklega hluta almenns ökuprófs frá og með 1. apríl nk.  Ákveðið var á síðasta ári að gera tilraun í eitt ár með að bjóða styrki til náms til almennra ökuréttinda.  Að loknu þessu tilraunatímabili skyldi reynslan af þessu fyrirkomulagi metin.  Á grundvelli þessa mats ákvað stjórn Starfsafls að miða styrki til náms til almennra ökuréttinda við skriflega hlutann (Ökuskóli I og II) frá og með 1. apríl nk.  Almennar reglur um starfsmenntanám gilda en hámarksupphæð miðast við kostnað nemanda við Ökuskóla I og II.

 
 
 
 

Starfsafl - Sætúni 1, 105 Reykjavík - 510-7544