Starfsafl
Starfsmennt Samtaka
atvinnulífsins og
Flóabandalagsins
Sætún 1
sími: 510 7544
fax: 510 7549
starfsafl@starfsafl.is
Endurmenntun HÍ og Starfsafl semja um aukið samstarf

Starfsafl og Endurmenntun Háskóla Íslands (EHÍ) undirrituðu í gær samstarfssamning sem miðar að því að greiða leið almennra starfmanna að námskeiðum Endurmenntunar Háskólans. 

Í samningnum kemur fram að sameiginlegt markmið EHÍ og Starfsafls er að auka alhliða og sértæka færni almennra starfsmanna í atvinnulífinu á höfuðborgarsvæðinu.  Í því skyni munu EHÍ og Starfsafl auka samstarf sitt og kappkosta að bjóða fyrirtækjum, sem hafa almenna starfsmenn innan stéttarfélaga Starfsafls, símenntunarlausnir sem henta þörfum þeirra. 

Endurmenntun Háskóla Íslands býður upp á námskeið af ýmsu tagi um nánast allt milli himins og jarðar.  Mörg námskeið EHÍ eru metin til eininga á háskólastigi og mörg þeirra krefjast ekki endilega stúdentsprófs heldur er litið á aldur og atvinnureynslu þátttakenda.  Kennarar eru valdir af kostgæfni og hafa yfirleitt mikla reynslu úr atvinnulífinu.  Starfsafl býður nýjan fræðsluaðila hjartanlega velkominn til samstarfs!

 
 
 
 

Starfsafl - Sætúni 1, 105 Reykjavík - 510-7544