Jarðlagnatækni er 300 kennslustunda nám.
Námið er ætlað fólki á vinnumarkaði sem eru verkamenn, flokksstjórar, verkstjórar og verktakar, sem vinna við nýlagnir, endurbætur, viðhald og viðgerðir rafstrengja, vatnslagna, hitalagna, fjarskiptalagna og fráveitna í jörð.
Námið fer að miklu leyti fram með umræðum og verkefnavinnu, m.a. hagnýtum verkefnum utan hefðbundnu kennslustofunnar.
Námið eykur færni starfsmanna í jarðlögnum og faglegt stolt þeirra í starfi.
Mímir símenntun og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum sjá um kennslu í náminu á starfssvæði Starfsafls.
Menntamálaráðuneytið hefur samþykkt að meta Jarðlagnatækni til styttingar á námi í framhaldsskóla til 24 eininga.
Nánari upplýsingar á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins eru hér.
Námsskrá með nánari lýsingu er að finna hér.