


Námsskrár Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur m.a. það hlutverk að gefa út námskrár fyrir nám sem er ætlað fólki í atvinnulífinu, einkum þá sem hafa litla formlega menntun. Á vefsíðu Fræðslumiðstöðvarinnar má finna heildaryfirlit yfir þær námsskrár sem hafa verið gefnar út. Nám samkvæmt þessum námsskrám má meta til eininga á framhaldsskólastigi. Mímir símenntun og fleiri fræðsluaðilar t.d. Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum gefa nánari upplýsingar um hvort og hvenær nám samkvæmt þessum námsskrám verður í boði.
Starfsafl vill vekja athygli á nokkrum námsskrám:
Færni í ferðaþjónustu I - námsskrá - umsagnir
60 kest, allt að 5 einingar. Ætlað starfsmönnum í ferðaþjónustu eða þeim sem stefna að starfi í greininni. Fyrsti hluti námsins getur hentað fyrir nýliða eða sumarstarfsfólk.
Færni í ferðaþjónustu II - námsskrá
100 kest, allt að 9 einingar. Ætlað þeim sem starfa í ferðaþjónustu, eru 20 ára og eldri og hafa ekki lokið framhaldsskóla.
Nánari upplýsingar á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins eru hér.
Þjónustuliði - námsskrá
60 kest, allt að 5 einingar. Ætlað þeim sem starfa við ræstingar, hreingerningar eða sótthreinsun, starfa í býtibúrum, borðstofum, kaffistofum, matsölum eða þvottahúsum.
Jarðlagnatækni - námsskrá - umsagnir
300 kest, allt að 24 einingar. Ætluð starfsmönnum orku-, fjarskipta- og verktakafyrirtækja, sem starfa við jarðlagnir.
Fjölvirkjar - námskrá
170 kest, allt að 13 einingar. Ætlað lykilstarfsmönnum fyrirtækja í iðnaði, framleiðslu og þjónustu.
Aftur í nám - námsskrá - umsagnir
95 kest, allt að 7 einingar. Tilgangur námsins er að styrkja sjálfstraust námsmanna, þjálfa þá í lestri og skrift með aðferðum Ron Davis og búa þá undir frekari þjálfun eftir að námskeiðinu lýkur.
Grunnmenntaskólinn - námsskrá - umsagnir
300 kest, allt að 24 einingar. Ætlaður fólki á vinnumarkaði sem vill efla sig í almennum greinum.
Landnemaskólinn - námsskrá - umsagnir
120 kest, allt að 10 einingar. Ætlaður nýjum Íslendingum á vinnu-markaði, sem vilja þjálfa íslensku og kynna sér samfélagið.
Ath.: Kest = kennslustundir (40 mín).