Starfsafl
Starfsmennt Samtaka
atvinnulífsins og
Flóabandalagsins
Sætún 1
sími: 510 7544
fax: 510 7549
starfsafl@starfsafl.is

Starfsafl hefur stjórnað og tekið þátt í evrópuverkefnum:

Starfs- og námsráðgjöf fyrir ófaglærða: Fjarnám

Nýtt Evrópskt starfs- og námsráðgjafaverkefni fjármagnað að hluta til með stuðningi Leonardó da Vinci starfsmenntaáætlunar Evrópusambandsins. Stendur frá 1. Október 2003 til 31. mars 2006.

Námið er skipulagt fyrir þá sem vilja taka að sér að kynna og benda á möguleika sem felast í náms- og starfsráðgjöf fyrir almennt launafólk með stutta skólagöngu að baki. Námið er hugsað fyrir trúnaðarmenn stéttarfélaga, millistjórnendur, starfsmannastjóra og fleiri.

Almennt launafólk með stutta skólagöngu að baki er yfirleitt í mestri hættu á að missa starf sitt vegna breytinga og þróunar á vinnumarkaði. Þá hafa möguleikar þess til framþróunar og aðlögunar að breyttum vinnumarkaði verið takmarkaðir.

Námið mun nýtast fulltrúum stéttarfélaga og fyrirtækja við að aðstoða samstarfsmenn sína við að finna sér nám og þjálfun við hæfi. Ásamt því mun námið gefa innsýn í störf náms- og starfsráðgjafa sem þeir geta miðlað áfram til samstarfsmanna ef þeir vilja sækja sér frekari ráðgjöf.

Námið sem við ætlum að bjóða fulltrúum stéttarfélaga og fyrirtækja í þessum tilgangi er 100 stundir sem að mestu verður kennt sem fjarnám (með aðstoð heimasíðu) en að einhverju leiti sem staðnám. Námið fer fram á tímabilinu janúar til júní 2005.

Námsefnið verður á Tékknesku, Dönsku, Ensku, Finnsku, Íslensku, Ítölsku, Norsku, Spænsku,og Sænsku. Nemendur þurfa að hafa grunn tölvuþekkingu og hafa kynnst internetinu.

Eftir að hafa lokið þessu 100 stunda námi eiga þátttakendur að:

  • hafa öðlast innsýn í náms- og starfsráðgjöf
  • geta veitt "fyrstu ráðgjöf" til samstarfsmanna
  • vita hvar samstarfsmenn geta sótt sér frekari ráðgjöf hjá náms- og starfsráðgjöfum


  • TAG – third age quidance - Þriðju kynslóðar ráðgjöf

    Nýtt verkefni þar sem Starfsafl er eitt af 9 þátttakendum – verkefnið er fram á árið 2007. Nánar um verkefnið




Starfsafl - Sætúni 1, 105 Reykjavík - 510-7544