Starfsafl
Starfsmennt samtaka atvinnulífsins og Flóabandalagsins
Sætún 1
sími: 510 7544
fax: 510 7549
starfsafl@starfsafl.is


Næsti stjórnarfundur
Starfsafls verður:
16. sept. 2010
Fyrirtækjum og fræðsluaðilum er bent á að
senda inn umsóknir
í tæka tíð fyrir fundinn
___________________
 

Næsta úthlutun einstaklingsstyrkja Starfsafls er 1. okt. 2010. Skila þarf umsóknum í síðasta lagi 20. sept. nk.  

Individual grants for vocational training are to be paid out 1 Oct. 2010. Turn in your application on   
20 September
2010
at the latest. 

Einstaklingsstyrkir eru þrenns konar:

1. Almennir starfsmennta-styrkir til starfsmennta-náms. Styrkur fyrir 75% námskeiðsgjalda en að hámarki 60.000 kr á ári.

2. Styrkir til lífsleiknináms (listmálun, saga o.fl.).  Styrkur fyrir 50% námskeiðsgjalda en að hámarki 18.000 kr á ári.

3.  Stærri styrkir til starfs-menntanáms, 132.000 kr ef viðkomandi hefur greitt í a.m.k. 3 ár til stéttar-félagsins og ekki nýtt sér fræðslustyrki á þeim tíma.  Sérstakir styrkir eru einnig til meiraprófsnáms, 100.000 kr alls.  Aldrei er greitt meira en 75% námskostnaðar.

Sjá nánar...

  

Starfsafl er til húsa að Sætúni 1, nálægt Hlemmi

Starfsafl is located in Sætún 1, close to Hlemmur Bus Station

____________

09. mars 2010 | 13:27

Stjórn Starfsafls ákvað á fundi sínum 2. mars sl. að styrkja einungis bóklega hluta almenns ökuprófs frá og með 1. apríl nk.  Hámarksupphæð verður 75% af námskostnaði við Ökuskóla I og II.  Almennar reglur um starfsmenntastyrki gilda (frumrit kvittunar).
24. febrúar 2010 | 16:16

Starfsafl og Endurmenntun Háskóla Íslands undirrituðu í gær samstarfssamning sem miðar að því að greiða leið almennra starfmanna að námskeiðum Endurmenntunar Háskólans. 
17. febrúar 2010 | 15:31

Starfsafl og Lifandi Ráðgjöf ehf, undirrituðu nýlega samstarfssamning sem miðar að því að greiða leið almennra starfmanna að námskeiðum Lifandi Ráðgjafar.
10. febrúar 2010 | 11:28

Stjórnvísi, VIRK endurhæfingarsjóður og Starfsafl stóðu fyrir kynningarfundi meðal mannauðsstjóra Stjórnvísis, félags um stjórnun, í dag.  Sjóðirnir kynntu þjónustu sína og svöruðu spurningum.  Um 40 manns sóttu fundinn sem heppnaðist í alla staði vel.
03. febrúar 2010 | 08:38

Starfsafl og Opni háskólinn, endurmenntun Háskólans í Reykjavík, undirrituðu nýlega samstarfssamning sem miðar að því að greiða leið almennra starfmanna að námsframboði Opna Háskólans.
28. janúar 2010 | 14:50

Reykjavik Excursions (Kynnisferðir ehf), Starfsafl og Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks (SVS) hafa gengið frá samkomulagi um um lán á fræðslustjóra til fyrirtækisins.  Samningurinn nær til um 80 starfsmanna Flóabandalagsins og VR/LÍV hjá Kynnisferðum.
08. janúar 2010 | 15:02

Efling býður félagsmönnum upp á ókeypis þjónustu náms- og starfsráðgjafa.  Ráðgjafinn verður til viðtals einu sinni í viku og tímabókanir eru á skrifstofu Eflingar, sími 510 7500.  Starfsafl hvetur alla félagsmenn að nýta sér þessa þjónustu til að finna námskeið við hæfi. 
21. desember 2009 | 14:03

Eimskip, Starfsafl, Landsmennt og Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks (SVS) hafa gengið frá samkomulagi um um lán á fræðslustjóra til fyrirtækisins.  Samningurinn nær til um 500 starfsmanna Eflingar, verkalýðsfélaga á landsbyggðinni og VR/LÍV hjá Eimskip.
18. desember 2009 | 14:35

Mímir símenntun býður nám í jarðlagnatækni og hefst námið 11. jan. nk.  Námið fylgir námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og er metið til eininga á framhaldsskólastigi.  Starfsafl styrkir einstaklinga til námsins. Innritun lýkur 23. des. nk.
14. desember 2009 | 14:31

Lystadún Marco, Starfsafl og Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks (SVS) hafa gengið frá samkomulagi um um lán á fræðslustjóra til fyrirtækisins.  Samningurinn nær til um 30 starfsmanna Eflingar og VR hjá Lystadún Marco.

Flýtileiðir
Fróðleikur

Athugið!

Greiða þarf til stéttarfélags í a.m.k. 6 mánuði áður en nám hefst, til að fá fræðslustyrk.

Munið að skila frumriti kvittunar skóla- og namskeiðsgjalda með umsókn. EF þú ert á atvinnuleysisbótum þá skilar þú inn síðasta launaseðli frá Vinnumálastofnun.

Ef greitt er í heimabanka þarf frumrit greiðsluseðils og útskrift úr heimabanka.

Check this please!

You have to pay for at least 6 months to your union club before you start your studies in order to get a vocational grant.

You must turn in the orginal receipt for tution fee with your application. IF you receive unemployment benefits you turn in your last benefit slip from Vinnumálastofnun.

If you use an internet bank you must turn in the original invoice (greiðsluseðill) and a printed transaction from your internet bank.

Starfsafl - Sætúni 1, 105 Reykjavík - 510-7544