Starfsafl
Starfsmennt samtaka atvinnulífsins og Flóabandalagsins
Sætún 1
sími: 510 7544
fax: 510 7549
starfsafl@starfsafl.is


Næsti stjórnarfundur
Starfsafls verður:
24. júní 2010
Fyrirtækjum og fræðsluaðilum er bent á að
senda inn umsóknir
í tæka tíð fyrir fundinn
___________________
 

Næsta úthlutun einstaklingsstyrkja Starfsafls er 1. júlí 2010. Skila þarf umsóknum í síðasta lagi 21. júní nk.  

Individual grants for vocational training are to be paid out 1 July 2010. Turn in your application on   
21 June
2010
at the latest. 

Einstaklingsstyrkir eru þrenns konar:

1. Almennir starfsmennta-styrkir til starfsmennta-náms. Styrkur fyrir 75% námskeiðsgjalda en að hámarki 60.000 kr á ári.

2. Styrkir til lífsleiknináms (listmálun, saga o.fl.).  Styrkur fyrir 50% námskeiðsgjalda en að hámarki 18.000 kr á ári.

3.  Stærri styrkir til starfs-menntanáms, 132.000 kr ef viðkomandi hefur greitt í a.m.k. 3 ár til stéttar-félagsins og ekki nýtt sér fræðslustyrki á þeim tíma.  Sérstakir styrkir eru einnig til meiraprófsnáms, 100.000 kr alls.  Aldrei er greitt meira en 75% námskostnaðar.

Sjá nánar...

  

Starfsafl er til húsa að Sætúni 1, nálægt Hlemmi

Starfsafl is located in Sætún 1, close to Hlemmur Bus Station

____________

14. júní 2010 | 13:34

Alls voru 2.175 einstaklingsstyrkir afgreiddir árið 2009 til félagsmanna Eflingar, Hlífar og VSFK.  Styrkirnir hafa aldrei verið fleiri í sögu sjóðsins og 48% fleiri en árið 2008.  Greiddar voru 67,7 m.kr. í einstaklingsstyrki sem er 77% hærri upphæð en 2008. 
21. maí 2010 | 13:25

Þrettán starfsmenn voru útskrifaðir sem flutningatæknar úr Flutningaskóla Samskipa við hátíðlega athöfn í gær að viðstöddum Kristjáni L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og fleiri góðum gestum. Skólinn, sem starfræktur er í samstarfi við Mími-símenntun, er sérhæfður fyrir starfsfólk Samskipa í vöruhúsum, á gámavelli og bílstjóra félagsins.
26. apríl 2010 | 13:34

Fulltrúar Starfsafls og Eflingar funduðu með starfsmönnum Magna verktaka fyrr í þessum mánuði.  Framkvæmdastjóri Starfsafls lagði áherslu á þá fræðslustyrki sem standa félagsmönnum Eflingar til boða.  Fundurinn tókst með ágætum og full ástæða til að hvetja starfsmenn að nýta aukinn tíma til afla sér viðbótarréttinda af ýmsu tagi.
29. mars 2010 | 15:48

1912 samstæðan, Starfsafl og Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks (SVS) hafa gengið frá samkomulagi um um lán á fræðslustjóra til fyrirtækisins.  Samningurinn nær til um 70 starfsmanna samstæðunnar (1912 ehf, Nathan og Olsen hf, Ekran ehf).
24. mars 2010 | 09:36

Mímir símenntun útskrifaði 17 nemendur í jarðlagnatækni sl. föstudag. Námið fylgir námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og er metið til eininga á framhaldsskólastigi.  
22. mars 2010 | 11:24

Íslenska Gámafélagið ehf., Starfsafl, Landsmennt og Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks (SVS) hafa gengið frá samkomulagi um um lán á fræðslustjóra til fyrirtækisins.  Samningurinn nær til um 180 starfsmanna sem greitt er af til sjóðanna.
16. mars 2010 | 12:32

Össur hf. hefur nýverið lokið nýrri þarfagreiningu og símenntunaráætlun fyrir almenna starfsmenn fyrirtækisins. Verkefnið var unnið með aðstoð verkefnisins Fræðslustjóri að láni sem Starfsafl bauð fyrirtækinu. Niðurstöður verkefnisins voru kynntar á fundi með starfsmönnum Starfsafls í gær.
09. mars 2010 | 13:27

Stjórn Starfsafls ákvað á fundi sínum 2. mars sl. að styrkja einungis bóklega hluta almenns ökuprófs frá og með 1. apríl nk.  Hámarksupphæð verður 75% af námskostnaði við Ökuskóla I og II.  Almennar reglur um starfsmenntastyrki gilda (frumrit kvittunar).
24. febrúar 2010 | 16:16

Starfsafl og Endurmenntun Háskóla Íslands undirrituðu í gær samstarfssamning sem miðar að því að greiða leið almennra starfmanna að námskeiðum Endurmenntunar Háskólans. 
17. febrúar 2010 | 15:31

Starfsafl og Lifandi Ráðgjöf ehf, undirrituðu nýlega samstarfssamning sem miðar að því að greiða leið almennra starfmanna að námskeiðum Lifandi Ráðgjafar.

Flýtileiðir
Fróðleikur

Athugið!

Greiða þarf til stéttarfélags í a.m.k. 6 mánuði áður en nám hefst, til að fá fræðslustyrk.

Munið að skila frumriti kvittunar skóla- og namskeiðsgjalda með umsókn. EF þú ert á atvinnuleysisbótum þá skilar þú inn síðasta launaseðli frá Vinnumálastofnun.

Ef greitt er í heimabanka þarf frumrit greiðsluseðils og útskrift úr heimabanka.

Check this please!

You have to pay for at least 6 months to your union club before you start your studies in order to get a vocational grant.

You must turn in the orginal receipt for tution fee with your application. IF you receive unemployment benefits you turn in your last benefit slip from Vinnumálastofnun.

If you use an internet bank you must turn in the original invoice (greiðsluseðill) and a printed transaction from your internet bank.

Starfsafl - Sætúni 1, 105 Reykjavík - 510-7544