Starfsafl
Starfsmennt samtaka atvinnulífsins og Flóabandalagsins
Sætún 1
sími: 510 7544
fax: 510 7549
starfsafl@starfsafl.is


___________________
  
Næsti stjórnarfundur
Starfsafls verður:
3. maí 2012
Fyrirtækjum og fræðsluaðilum er bent á að
senda inn umsóknir
í tæka tíð fyrir fundinn
___________________
 

Næsta úthlutun einstaklingsstyrkja Starfsafls er 1. júní 2012. Skila þarf umsóknum í síðasta lagi 21. maí nk.  

Individual grants for vocational training are to be paid out 1 June 2012. Turn in your application on 21_May 2012
at the latest. 

Einstaklingsstyrkir eru þrenns konar:

1. Almennir starfsmenntastyrkir til starfsmenntanáms. Styrkur fyrir 75% námskeiðsgjalda en að hámarki 60.000 kr á ári.

2. Styrkir til lífsleiknináms (listmálun, saga o.fl.).  Styrkur fyrir 50% námskeiðsgjalda en að hámarki 18.000 kr á ári.

3.  Stærri styrkir til starfs-menntanáms, 180.000 kr ef viðkomandi hefur greitt í a.m.k. 3 ár til stéttarfélagsins og ekki nýtt sér fræðslustyrki á þeim tíma.  Sérstakir styrkir eru einnig til meiraprófsnáms, 100.000 kr alls.  Aldrei er greitt meira en 75% námskostnaðar.

Sjá nánar...

wpl_135

   Vefsíða um EU-verkefni Starfsafls um náms- og starfsráðgjöf á vinnustöðum

Starfsafl er til húsa að Sætúni 1, nálægt Hlemmi

Starfsafl is located in Sætún 1, close to Hlemmur Bus Station

____________

22. mars 2012 | 14:05

Kex Hostel skrifaði í morgun undir samning við Starfsafl og Starfsmenntasjóð verslunar- og skrifstofufólks um fræðslustjóra að láni frá sjóðunum.  Kex Hostel er eitt athyglisverðasta ferðaþjónustufyrirtækið á höfuðborgarsvæðinu og hefur m.a. hlotið nýsköpunarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar.
16. febrúar 2012 | 16:47

Dagur menntunar í ferðaþjónustu var haldinn í dag á vegum Samtaka ferðaþjónustunnar með stuðningi fræðslusjóðanna Starfsafls, Landsmenntar og Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks (SVS) og fleiri aðila.  Haldin voru mörg áhugaverð erindi. Starfsmenntaviðurkenningu SAF í ár hlaut ferðaskrifstofan Iceland Travel.
08. febrúar 2012 | 16:24

Fræðslusjóðirnir Starfsafl, Landsmennt og Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks (SVS) hafa nú, í ljós ábendinga og reynslu sl. árs, endurnýjað sameiginlegt umsóknaeyðublað fyrir fyrirtæki sem vilja sækja styrki til starfsmenntunar.  Hægt að sækja um til allra sjóðanna í einu, tveggja sjóða eða einstaks sjóðs.  Það er von sjóðanna að þetta verði áfram til að einfalda alla skriffinsku fyrirtækjanna og auka veg starfsmenntunar í fyrirtækjum.
28. október 2011 | 14:47

Starfsafl er verkefnisstjóri í ESB verkefninu T-Planner (Training Planner) for SMEs eða Fræðslustjóri fyrir smáfyrirtæki.  Fyrsti fundur verkefnisins var haldinn nú í lok október og á dagskránni voru heimsóknir í fyrirtæki sem hafa fengið fræðslustjóra að láni fyrir fulltingi Starfsafls.  Fyrirtækin sem voru heimsótt voru Reykjavik Excursions/Kynnisferðir ehf og Hreint ehf. 

29. september 2011 | 16:13

Starfsafl undirritaði í dag samning um styrk frá ESB í Leonardo menntaáætluninni vegna útflutnings á verkefninu "Fræðslustjóri að láni".  Verkefnið er til tveggja ára og snýst um að flytja út hugmyndafræði "Fræðslustjóra að láni" til Austurríkis og Spánar.  Styrkurinn nemur um 194.000 evrum (31,2 mkr) og þar af eru 53.500 evrur (ca 8,6 mkr) eyrnamerktar Starfsafli, sem er verkefnisstjóri.

15. september 2011 | 11:42

Starfsafl undirritaði nýlega samstarfssamning við Hreint ehf. um styrki vegna eigin fræðslu fyrirtækisins.

22. júní 2011 | 14:32

Starfsafl, Landsmennt og Starfsmenntasjóður verslunar og skrifstofufólks (SVS) gengu nýlega frá samningi um flutning réttinda félagsmanna milli fræðslusjóðanna.  Reglurnar eru einfaldari og er ætlað að tryggja sanngjarnan flutning réttinda.

11. maí 2011 | 14:56

Starfsafl hlaut nýverið styrk frá mannaskiptaáætlun Leonardo menntaáætlunar ESB.  Styrkurinn verður notaður til að senda 10 einstaklinga, Eflingarfélaga, frá 4 fyrirtækjum þ.e. Eflingu stéttarfélagi (sem sendir atvinnuleitendur), ISAVIA, Kjörís og Skeljungi, til vinnustaða á Norðurlöndunum í vikuþjálfun.  Styrkurinn er að upphæð 2,6 m.kr. og er notaður til að kosta ferðir og uppihald starfsmanna eða atvinnuleitenda.  Ferðir sem þessar hafa áður verið styrktar af Leonardo áætluninni og hafa tekist afskaplega vel og skilað miklum árangri.

14. apríl 2011 | 15:37

OLÍS, Olíuverzlun Íslands, gerði nýverið samning við Starfsafl og fleiri starfsmenntasjóði í verkefninu „Fræðslustjóri að láni“.  Samningurinn nær til tæplega 500 starfsmanna OLÍS þar af eru um 150 starfsmenn í Eflingu og VSFK.

18. mars 2011 | 14:45

Starfsafl og Landsmennt fögnuðu 10 ára afmæli í gær með stuttri og velsóttri afmælisráðstefnu á Hótel Sögu.  Ráðstefnan tókst vel og var gerður góður rómur að erindum framsögumanna.  Um eitt hundrað gestir sóttu ráðstefnuna.


Flýtileiðir
Fróðleikur

Athugið!

Greiða þarf til stéttarfélags í a.m.k. 6 mánuði áður en nám hefst, til að fá fræðslustyrk.

Munið að skila frumriti kvittunar skóla- og namskeiðsgjalda með umsókn. EF þú ert á atvinnuleysisbótum þá skilar þú inn síðasta launaseðli frá Vinnumálastofnun.

Ef greitt er í heimabanka þarf frumrit greiðsluseðils og útskrift úr heimabanka.

Check this please!

You have to pay for at least 6 months to your union club before you start your studies in order to get a vocational grant.

You must turn in the orginal receipt for tution fee with your application. IF you receive unemployment benefits you turn in your last benefit slip from Vinnumálastofnun.

If you use an internet bank you must turn in the original invoice (greiðsluseðill) and a printed transaction from your internet bank.

Starfsafl - Sætúni 1, 105 Reykjavík - 510-7544